Færsluflokkur: Bloggar

Amma, 90 ára þann 29 apríl, kaus í dag

Mamma dreif gömlu konuna hana ömmu mína 89 ára gamla. Hún fékk að fara fremst í röðina á göngugrindinni sinni. Þegar í kjörklefann var komið voru nokkrir stimplar sem átti að nota til að merkja kjörseðilinn með þeim listabókstaf sem hún vildi kjósa.

Hún var alveg harðákveðin í að styðja nú barnabarnið sitt og tók upp stimpilinn sem stóð á T. En þegar hún skellti T-inu á blaðið þá kom ekkert á seðilinn. Hún kallar fram og segir að það komi ekkert. Einn fulltrúanna kemur til að aðstoða hana og sér þá að hún hafði stimplað T-ið í lófann á sér. Fulltrúin aðstoðar hana svo að hún fari nú ekki með atkvæðið aftur heim í lófanum.


mbl.is 14% atkvæðisbærra hafa kosið
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Velferðarráðuneytið reynir að bjarga sér fyrir horn

Fyrir 10 dögum síðan sagði fulltrúi SÍ að verið væri að skoða greiðsludreifingu en það yrði ekki tilbúið áður en kerfið færi í loftið.
Þrátt fyrir þessa greiðslu dreifingu þá er stór hópur fólks sem hefur ekki greitt fyrir lyf sín hingað til og á skuldavanda og nær varla endum saman. Þessi greiðsludreifing mun ekki koma að neinu gangi fyrir þann hóp. Einnig er ekkert hámark komið á lyfjakostnað heimila. Mörg heimili eru með fleiri en einn einstakling á dýrum lyfjum og mun þetta koma illa niður á þeim þrátt fyrir greiðsludreifingu því hún gerir bara ráð fyrir einstaklingum.

Það er ljóst að sá þrýstingur sem undirskriftarsöfnunin hefur valdið er að skila sér í því að ráðuneytið er að reyna að hífa upp um sig buxurnar en það vantar samt belti eða axlarbönd til að halda þeim uppi. 

Nú er bara spurning hvort ráðuneytið geti ekki frestað gildistökunni svo allir nái að átta sig á breytingunum og að þeir sem eiga í greiðsluvanda fyrir geti haft samband og óskað eftir úrræðum. Fulltrúi SÍ hefur gefið það út að ekki verði fylgst með þeim sem geta ekki leyst út lyfin sín á neinn hátt og það er óásættanlegt.

p.s.

Og hvað ef lyfsali sækir ekki um - hvað þá?


mbl.is Lyfjakaupendur geta dreift kostnaði
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Tugþúsunda álögur án fyrrivara

Göfugt markmið að mismuna ekki eftir sjúkdómum. En sjúkdómar eru mjög mismunandi í eðli sínu og sumum sjúkdómum fylgir mikill kostnaður annar en lyfjakostnaður.

 Sjá grein frá sykurskjúkum sem er sá hópur sem lendir einna verst í nýja kerfinu.

Kíkið athugasemdirnar á undirskriftarlistanum og sjáið hve margir eru að lenda illa í þessu.

Fólk er ekki að sjá fram á að eiga fyrir fyrsta þrepinu í þessu nýja kerfi. Þeir sem hefðu á nokkrum mánuðum getað sparað fyrir fyrsta þrepinu fá engan tíma til þess. Eru þvinguð til þess að fá lán hjá banka eða smálána fyrirtæki til að dekka óvæntan lyfjakostnað.

Það er lágmark að fresta þessari gildistöku  í 6 mánuði eða hætta við þetta alveg og skoða málið betur.

Þú setur ekki tugþúsunda álögur á fólk án fyrirvara.

Sérstaklega ekki fólk sem þarf lífsnauðsynlega á lyfjum að halda.


mbl.is Sanngjarnara að mismuna ekki sjúkum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Undirskriftarlisti gegn þessum breytingum

Undirskriftarlistinn gegn þessum breytingum hefur aldrei verið líflegri enda umræðan rétt ný hafin korter í að lögin taka gildi. Það hefur algjörlega misfarist að kynna breytingarnar í tæka tíð fyrir sjúklingum.

Saman getum við fengið þessu breytt.


mbl.is Sykursjúkir „sitja í sjokki“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Dögun vantar lítið til að ná 3-5 inn á þing

Dögun hefur verið á stöðugri uppleið í síðustu könnunum enda allir á fullu að kynna málefnin. Við í Dögun ætlum alla leið og Við ætlum að leiðrétta lánin, stöðva fullnustu aðgerðir og tryggja lágmarksframfærslu.
Við ætlum að hámarka arð þjóðarinnar af náttúruauðlindum og tryggja sjálfbæra nýtingu.
Við ætlum setja stjórnarskrá fólksins sem allra fyrst til þjóðaratkvæðis.

Dögun vantar innan við 2% til að ná 3-5 fulltrúum á þing. 40% kjósenda ennþá óákveðnir. Þetta kemur fram í skoðanakönnun sem Félagsvísindastofnun Háskóla Íslands dagana 17. - 23. apríl.


mbl.is Nánast jafnstórir
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Horfa ekki á kostnað fjölskyldunnar

Við erum ekki bara einstaklingar. Í þessu nýja kerfi þá hefur algjörlega gleymst að horfa á stöðu fjölskyldunar. Oft eru sjúkdómar ættgengir og legst því þessi breyting illa á margar fjölskyldur. Fulltrúi SÍ svaraði því til að þeim hefði aldrei dottið í hug að skoða þetta frá sjónarhorni fjölskyldunar.

https://www.change.org/petitions/gu%C3%B0bjartur-hannesson-velfer%C3%B0arr%C3%A1%C3%B0herra-h%C3%A6ttu-vi%C3%B0-fyrirhuga%C3%B0ar-breytingar-%C3%A1-l%C3%B6gum-um-grei%C3%B0slu%C3%BE%C3%A1ttt%C3%B6ku-lyfja


mbl.is Sumir greiða minna, aðrir meira
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Greiða fyrir að halda lífi

Langar að benda meira sambandi við nýja kerfið...
A) - Þeir sem eru nú að fá afslætti í apótekum af sínum lyfjum. T.d. greiða börn sem taka Conserta 1.900 kr fyrir hverja lyfjaávísun. Oftar en ekki hafa sjúklingar fengið þennan kostnað felldan niður sem afslátt af apótekum. Fullorðnir greiða 6.800 án afláttar. (þekki ekki persónulega hve mikinn afslátt þeir hafa fengið af þeirri upphæð). En amk börn hafa því verið að greiða ekkert fyrir Conserta sem er gefið við ADHD.
Í nýja kerfinu krefst SÍ hlut í afslætti til sjúklinga og mun þessi afsláttur leggjast af í nýju kerfi.
 
6. gr. reglugerðarinnar má finna: "Afsláttur af verði lyfs lækkar smásöluverð þess og miðast greiðsluþátttaka sjúkra­trygg­inga við smásöluverðið ef það er lægra en lægsta verð lyfsins í lyfjaverðskrá."
http://www.stjornartidindi.is/Advert.aspx?ID=b02f1cf8-83f9-4f1c-83e3-7a79f5616319
 
Í þeim dæmum sem SÍ tekur við kynningu á kerfinu er gamla verðið aldrei miðað við afsláttarverð frá apótekum og því koma dæmin sem þau taka alltaf betur út en í raunveruleikanum.

B) - Nær allir sem eru að taka lyf við ADHD munu koma mun verr út úr þessu nýja kerfi en því gamla vegna afláttarins og að lyfin eru mjög dýr og hafa verið mikið niðurgreidd. Það lítur líka út fyrir að margir fullorðnir missi rétt sinn til niðurgreiðslu á lyfjum við ADHD - nema þair hafi lyfjaskírteini.
C) - Annar kostnaður vegna sjúkdóma sem fellur ekki undir lyjfa eða lækniskostnað er t.d. og þá sérstaklega hjá börnum. Iðjuþjálfun, þroskaþjálfun, talþjálfun og sjúkraþjálfun. Og ef um þroskakerðingu er að ræða sem fylgir stundum flogaveiki þá þarf oft töluverðan suðning á mörgum sviðum.

D) - Ég kvartaði undan stuttum fyrirvara til umb. Alþingis þar sem frumvarpið var ekki gefið út fyrr en 9. apríl 2013 og þá innan við mánuður til gildistöu laganna. Allt of stuttur fyrir vari fyrir svona íþyngjandi breytingar. Árið 2011 fékk LÍN ávítur frá umb. Alþingis fyir að gefa námsmönnum aðeins 2 mánaðar fyrirvara fyrir að viðhafa ekki vandaða stjórnsýslu.

E) - yfir 2500 hafa tekið þátt í undirskrftarlista gegn þessum breytingum.
https://www.change.org/petitions/gu%C3%B0bjartur-hannesson-velfer%C3%B0arr%C3%A1%C3%B0herra-h%C3%A6tta-vi%C3%B0-fyrirhuga%C3%B0ar-breytingar-%C3%A1-l%C3%B6gum-um-grei%C3%B0slu%C3%BE%C3%A1ttt%C3%B6kulyfja
Þar má finna athugasemdir frá þeim sem skrifa undir og margir hverjir sjá ekki fram á að geta greitt fyrir lyfin sín vegna hærri lyfjakostnaðar jafn vel þó að boðið yrði upp á greiðsludreifingu.

Dæmi um athugasemd:
"Er með insúlínháða sykursýki og sé ekki fram á að geta borgað lyfin mín sem ég þarf. Það verður gaman á sjúkrahúsunum þegar allt fyllist af einstaklingum sem hafa ekki efni á lyfjunum sínum."
Athugasemdir sem þessar fylla 60 síður í pdf-skjali.

F) Ráðuneytið er að skoða greiðsludreifingu en samkvæmt fulltrúa SÍ þá verður það ekki tilbúið áður en kerfið fer í gang 4. maí.

G) Ég spurði SÍ hvernig þau ætluðu að fylgjast með þeim sem hafa ekki efni á lyfjunum og munu ekki kaupa lyfin vegna hærri kostnaðar. Svarið var: við munum ekkert fylgjast með þeim.

Baráttukveðjur
Sigurður Jónas Eggertsson

mbl.is „Greiða fyrir að halda lífi“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Um bloggið

Sigurður Jónas Eggertsson

Höfundur

Sigurður Jónas Eggertsson
Sigurður Jónas Eggertsson

Tölvunarfærðingur á besta aldri sem sér margt sem mætti fara betur hjá hinu obinbera.

Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (3.5.): 0
  • Sl. sólarhring:
  • Sl. viku:
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku:
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband